Starfsfólk í félagsmiðstöð
- Akureyrarbær
- Iceland
Naustaskóli leitar að öflugu starfsfólki í félagsmiðstöð skólans. Um er að ræða tímavinnu sem fer fram eftir klukkan 14 og/eða á kvöldin, um 10-25 klukkustundir á mánuði. Starfið er tímabundið fyrir skólaárið 2026-2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni eru:
- Umsjón og framkvæmd verkefna á vegum félagsmiðstöðva.
- Vinna með börnum og unglingum á aldrinum 13 til 16 ára.
- Vera leiðandi fyrirmynd í uppbyggilegu starfi þar sem forvarnir eru hafðar að leiðarljósi, leitast við að efla sjálfsmynd unglinga og virkja þá til uppbyggilegrar þátttöku.
- Að ná til barna/unglinga, sérstaklega þeirra sem eru illa stödd félagslega.
Hæfniskröfur
- Áhugi á starfi með börnum og unglingum.
- Reynsla af starfi með börnum og unglingum kostur.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Samskiptafærni.
- Hreint sakavottorð.
- Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veita Bryndís Björnsdóttir skólastjóri, dis@akmennt.is og Arndís Ósk Arnarsdóttir deildarstjóri forvarna- og frístundamála, arndis.osk.arnardottir@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 9. september 2026.
Skills
- Youth Work
- Group Facilitation
- Prevention Programs
- Communication Skills
- Initiative
- Independent Work
- Clean Criminal Record

