HirePortal

Verkefnastjóri framkvæmda

  • Hrafnista
  • Iceland
  • ISK 9,000,000 – ISK 12,000,000

Sjómannadagsráð leitar að öflugum verkefnastjóra til að leiða verkefni tengt nýframkvæmdum og endurbótum húsnæðis. Verkefnastjóri hefur umsjón með verkum á hönnunar- og framkvæmdastigi, gerir áætlanir og hefur eftirlit með framkvæmdum á byggingarstað. Verkefnastjóri fylgir eftir að rekstur verkefna sé innan kostnaðar- og tímaramma og tryggir lágmörkun á röskun á starfsemi rekstraraðila vegna endurbóta húsnæðis.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sérfræðiráðgjöf og/eða verkefnisstjórn nýframkvæmda- og endurbótaverkefna
  • Gerð og eftirfylgni tíma- og kostnaðaráætlana
  • Eftirlit með gæðum, öryggi og framvindu á byggingarstað
  • Þátttaka í frumkvæðisverkefnum innan Sjómannadagsráðs
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við framkvæmdastjóra

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði mannvirkjagerðar
  • Farsæl reynsla af verkefnastjórnun tengt mannvirkjum á hönnunar- og framkvæmdastigi
  • Reynsla af gerð tíma-, verk- og kostnaðaráætlana á hönnunar- og framkvæmdastigi
  • Færni í textagerð og framsetningu efnis
  • Þekking og reynsla á hugmyndafræði vistvænnar hönnunar er kostur
  • Reynsla af notkun hönnunarhugbúnaðar
  • Rík samskiptafærni, þjónustulund og hæfni til að starfa í teymi
  • Skipulagshæfni, frumkvæði auk jákvæðs og lausnamiðaðs viðhorfs

Sjómannadagsráð er leiðandi afl í öldrunarþjónustu á Íslandi sem vinnur að því að veita eldri borgurum framúrskarandi þjónustu svo íbúar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan.

Sjómannadagsráð sinnir umfangsmiklum rekstri húsa og þjónustu fyrir fólk á besta aldri. Lögð er áhersla á heildræna nálgun þegar kemur að málefnum eldri fólks og að tengja saman hjúkrunarheimilin, íbúðir fyrir eldra fólk og þjónustumiðstöðvar með lífsgæðakjörnum Das.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir áhuga á starfinu, helstu reynslu og ástæðum þess að umsækjandi telur sig henta vel í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Þröstur V. Söring, framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs og Das íbúða (throstur@sjomannadagsrad.is)

Skills

  • Project Management
  • Construction Management
  • Cost Estimation
  • Scheduling
  • Quality Assurance
  • Building Codes
  • Stakeholder Communication

Related jobs

HrafnistaApply for this job