HirePortal

Hugbúnaðarsérfræðingur

  • Verkís
  • Iceland
  • ISK 8,400,000 – ISK 10,800,000

Við leitum að öflugum liðsauka í tölvuþjónustu Verkís. Tölvuþjónustan ber meðal annars ábyrgð á rekstri og viðhaldi notendaþjónustu, hugbúnaði, netþjónum og skýjalausnum Verkís.

Við leitum eftir jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði, skipulagshæfni og metnaði í starfi og á auðvelt með að tileinka sér nýjungar.

Helstu verkefni snúa að rekstri og viðhaldi Sharepoint, Power Platform, skjalastjórnunarkerfis, CRM- og ERP kerfa. Starfið felur jafnframt í sér þátttöku í samþættingu og sjálfvirknivæðingu kerfa stofunnar ásamt ráðgjöf til stjórnenda við val á tæknilegum útfærslum og samþættingu kerfa.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærileg menntun
  • Þekking á rekstri skýjaumhverfa
  • Reynsla af notkun gagnagrunna
  • Þekking á forritunarmálum
  • Þekking á virkni API-viðmóta
  • Góð tæknileg yfirsýn og skipulagshæfni
  • Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í hópi
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku

Gert er ráð fyrir að starfsstöð viðkomandi verði í aðalsstöðvum Verkis í Reykjavík.

Umsóknarfrestur er til og með 13. september 2026.

Nánari upplýsingar veitir Áslaug Ósk Alfreðsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, aoa@verkis.is

Skills

  • SharePoint administration
  • Power Platform
  • Cloud Operations
  • Database Management
  • API Integration
  • Programming
  • System Integration

Related jobs

VerkísApply for this job