HirePortal

Pharmacy Sales and Service Associate

Við leitum að jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í sölu og afgreiðslu í Lyfju Setbergi. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun. Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf á líflegum vinnustað þar sem í boði eru samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og lausasölulyfjum
  • Þjónusta og almenn afgreiðlustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Starfið

Um hlutastarf er að ræða og vinnutími er samkvæmt samkomulagi á opnunartíma verslunar:

  • Virkir dagar 10:00-18:00
  • Laugardagar 10:00-14:00

Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 18 ára aldri.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ösp Magnúsdóttir, lyfsali Lyfju Setbergi í síma 555-2306 og á ingibjorgm@lyfja.is

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Skills

  • Customer Service
  • Pharmacy Operations
  • Prescription Dispensing
  • Product Knowledge
  • Icelandic Language
  • English Language
  • Retail sales

Related jobs

LyfjaApply for this job