Stuðningsfulltrúi í Húsaskóla
- Reykjavíkurborg
- Iceland
Um skólann
Húsaskóli er grunnskóli þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag og fjölbreytta kennsluhætti. Nemendur við skólann eru um 150.
Einkunnarorð skólans eru: jákvæðni - virðing - samvinna.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið eftir Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru sköpun, jafnrétti, virkni, heilsuefling og þátttaka barna í skólastarfinu, aukið samstarf og fagmennska. Einnig er unnið eftir stefnumótun verkefnisins Betri borg fyrir börn og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að aðstoða nemendur við þátttöku í skólastarfi og athafnir daglegs lífs.
- Að aðstoða nemendur í námsveri þar sem börnin þurfa mjög einstaklinsmiðaða nálgun.
- Að aðstoða nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara og deildarstjóra.
- Að fylgja einum eða fleiri nemendum eftir á ferðum þeirra í skólastarfi s.s. í sundi, frímínútum og vettvangsferðum.
- Að vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.
Hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í starfi.
- Gott vald á íslensku.
- Hreint sakarvottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar
- Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
- Starfshlutfall – 70-80%.
- Ráðningarform – Tímabundin ráðning.
- Nánari upplýsingar um starfið veitir Valdimar Víðisson skólastjóri valdimar.vidisson@reykjavik.is
Skills
- childcare
- special education
- student support
- individualized education plans
- Communication
- Flexibility
- Initiative

