HirePortal

Leikskólakennari

  • Garðabær
  • Iceland
  • ISK 6,600,000 – ISK 8,400,000

Krakkakot leitar að viðbót við flottan starfsmannahóp í 100% starf

Krakkakot er sex deilda leikskóli og er hann staðsettur á Álftanesi/Garðabæ. Skólinn vinnur eftir stefnunni "Uppeldi til ábyrgðar" sem ýtir undir jákvæð samskipti og leggur áherslu á virðingu í samskiptum. Aðferðin kennir börnum sjálfstjórn og sjálfsaga og styrkir einstaklinga í því að læra af mistökum.

Helsta náms- og þroskaleið barna er sjálfssprottni leikurinn og er honum gefið mikið rými í dagskipulagi skólans. Skólinn er hlýlegur og er lögð mikil áhersla á heimilislegt umhverfi, gleði og virðingu.

Í Garðabæ geta starfsmenn sótt um styrk í þróunarsjóð og er markmið hans að stuðla að framþróun og öflugu innra starfi í leikskólum Garðabæjar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara

Menntun, hæfni og reynsla:

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Hlunnindi fyrir starfsmenn Krakkakots:

  • Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er 2 klukkustundum á viku safnað upp í frídaga.
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar.
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánudaga-fimmtudaga og 7:30-16:00 á föstudögum
  • Fimm skipulagsdagar á ári

Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:

  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.

Hlunnindi fyrir starfsmenn leikskóla:

  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
  • 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
  • 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
  • Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
  • Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
  • Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn

Umsóknarfrestur er til og með 8. september og er staðan laus frá 14. september eða eftir samkomulagi. Um er að ræða framtíðarstarf.

Nánari upplýsingar um starfið veitir: Ragnhildur Gunnlaugsdóttir (Agga) leikskólastjóri í síma 5502330 eða með því að senda tölvupóst á ragnhildurg@krakkakot.is

Samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflurnar úr sakaskrá.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Skills

  • Early Childhood Education
  • Teaching License
  • Icelandic (B2)
  • Classroom Management
  • Child Development
  • Communication Skills
  • Initiative

Related jobs

GarðabærApply for this job