Water Systems Engineer
- EFLA
- Iceland
Við leitum að öflugum starfsmanni til að styrkja enn frekar teymi Vatnsmiðla. Í teyminu starfa sérfræðingar sem sinna fjölbreyttum verkefnum. Verkefni teymisins snúa að hönnun veitukerfa vatnsveitu, hitaveitu og fráveitu auk ofanvatnslausna og flóðagreininga.
Helstu verkefni
- Hönnun vatnsmiðla (vatnsveitu-, hitaveitu- og fráveitukerfa)
- Hönnun blágrænna ofanvatnslausna og flóðagreiningar
- Kerfisgreiningar og líkanagerð á sviði vatnsmiðla
- Verkefnastjórnun
- Þátttaka í uppbyggingaverkefnum í tengslum við skipulagsmál, sjálfbærni og loftlagsmál
Hæfniviðmið
- Umhverfis-, bygginga-, vélaverkfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Frumkvæði, sjálfstæði og samskiptahæfni
- Skipulögð vinnubrögð
- Mikill áhugi á uppbyggingu innviða vatnsmiðla
- Gott vald á íslensku og ensku, þekking á norðurlandamáli er kostur
Nánari upplýsingar veita sérfræðingar í mannauðsteymi EFLU.
Vinnustaðurinn EFLA
EFLA er þekkingarfyrirtæki sem starfar á sviði verkfræði og tækni.
EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starfrækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni. Við bjóðum störf óháð staðsetningu svo starfsfólk geti búið í sinni heimabyggð hvar sem er á landinu, unnið í spennandi verkefnum og tilheyrt öflugum teymum. Um fjórðungur starfsfólks EFLU starfar á landsbyggðinni.
Við bjóðum upp á afbragðs starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og góðan starfsanda.
Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.
EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki og hefur unnið frumkvöðlastarf í sjálfbærum rekstri.
Nánari upplýsingar um vinnustaðinn
Nánari upplýsingar um stefnur EFLU og persónuverndaryfirlýsing til umsækjenda
Skills
- Water Systems Design
- Hydraulic Modeling
- Stormwater Management
- Flood Analysis
- Project Management
- Icelandic
- English

