HirePortal

Verkefnastjóri skipulagsmála

Viltu taka þátt í að móta framtíð Akureyrarbæjar? Ef svo er, þá er laus til umsóknar spennandi staða verkefnastjóra skipulagsmála.

Um 100% stöðu er að ræða með sveigjanlegum vinnutíma. Meginstarfstöð er í Ráðhúsi Akureyrar.

Möguleiki er að vinna í fjarvinnu af og til ef það hentar, 36 klst. vinnuvika og mötuneyti á vinnustað.

Næsti yfirmaður er skipulagsfulltrúi.

Helstu verkefni eru:

  • Umsjón með aðal- og deiliskipulagsverkefnum á vegum bæjarins í samvinnu við skipulagsfulltrúa og aðra hagsmunaaðila.
  • Umsjón með stjórnsýslu varðandi afgreiðslu skipulagsmála
  • Vinna að kynningarmálum um skipulagsmál
  • Annast samskipti við Skipulagsstofnun og aðrar opinberar stofnanir.
  • Veita upplýsingar um skipulagsmál til íbúa- og annarra hagsmunaaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Gerð er krafa um háskólamenntun (BA, BS eða B.Ed.) í arkitektúr, landslagsarkitektúr, skipulagsfræði, landfræði, eða aðra menntun sem nýtist í starfi.
  • Starfsreynsla á sviði skipulagsmála er kostur.
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu og verklagi er kostur.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi og færni til að tileinka sér nýjungar.
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og rík þjónustulund.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi í síma 460-1142 eða í gegnum netfangið peturingi@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 6. október 2026.

Skills

  • Urban Planning
  • Land Use Planning
  • Public administration
  • Stakeholder Engagement
  • GIS
  • Regulatory Compliance
  • Icelandic Language

Related jobs

AkureyrarbærApply for this job