HirePortal

Marketing Director

Við leitum að markaðsstjóra til að leiða markaðsmál fyrir öll þrjú vörumerki samstæðunnar - Húsasmiðjuna, Blómaval og Ískraft. Markaðsstjóri ber höfuðábyrgð á ytri ásýnd, mörkun (branding) og vörumerkjastefnu félagsins og skapar söludrifna og orkumikla menningu byggða á gleði, krafti og fagmennsku.

Húsasmiðjan er eitt stærsta smásölufyrirtæki landsins og hefur lagt grunn að góðu samfélagi í 70 ár. Við veitum húseigendum og fagfólki í byggingariðnaði aðgang að réttu lausnunum og ráðgefandi þjónustu undir merkjum Húsasmiðjunnar, Blómaval og Ískraft á um 20 stöðum um land allt. Hjá okkur starfa 550 starfsmenn í ólíkum störfum. Húsasmiðjan er hluti af dönsku byggingavörukeðjunni BYGMA sem rekur verslanir í Danmörku, Svíþjóð, Póllandi, Íslandi, Grænlandi og Færeyjum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Leiðir stefnumótun og framkvæmd allra markaðsaðgerða og upplifun viðskiptavina fyrir vörumerkin þrjú; Húsmiðjan, Blómaval og Ískraft – frá stórum ímyndarherferðum til markvissra söluherferða, á öllum miðlum.
  • Byggir og viðheldur sterkri vörumerkjastefnu fyrir samstæðuna, tryggir skýra aðgreiningu á markaði og að hvert vörumerki hafi sína skýru rödd.
  • Innleiðir mælanleg markmið í allt markaðsstarf og greinir arðsemi fjárfestinga (ROMI) til að hámarka árangur markaðsfjárfestinga.
  • Leiðir þróun vefverslunar fyrir öll þrjú vörumerki samstæðunnar.
  • Stýrir samskiptum við fjölmiðla og hagaðila, leiðir krísustjórnun og verndar ímynd samstæðunnar.

Hæfniskröfur

  • Söludrifinn, hvetjandi og hugmyndaríkur leiðtogi sem hefur mikla reynslu af því að byggja upp og viðhalda sterkum tengslum og samskiptum við viðskiptavini, birgja og samstarfsfólk.
  • Viðamikil þekking á vörumerkjastýringu fyrir ólíkar einingar.
  • Reynsla af hönnun og framkvæmd stórra ímyndar- og söluherferða á bæði hefðbundnum og stafrænum miðlum.
  • Færni í uppbyggingu og notkun gagna í markaðsstörfum og arðsemismælingum markaðsfjárfestinga (ROMI).
  • Reynsla af stýringu almannatengsla (PR), samskiptum við fjölmiðla og krísustjórnun.

Skills

  • Marketing Strategy
  • Brand Management
  • Campaign Management
  • E-commerce
  • Media Relations
  • Crisis Management
  • Team Leadership
HúsasmiðjanApply for this job