Viðskiptastjóri einstaklinga á Selfossi
- Íslandsbanki
- Kópavogur, Iceland
- ISK 10,800,000 – ISK 14,400,000
Vilt þú leiða öflugt teymi og hafa áhrif á upplifun viðskiptavina á einu stærsta þjónustusvæði Íslandsbanka?
Íslandsbanki leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til starfa sem viðskiptastjóri einstaklinga í útibúi bankans á Selfossi. Um er að ræða lykilstjórnendastöðu þar sem þú berð ábyrgð á daglegri starfsemi einstaklingsþjónustu útibúsins, þróun og stuðningi við starfsfólk deildarinnar og vinnur markvisst að framúrskarandi þjónustu, sterkum viðskiptatengslum og árangri.
Viðskiptastjóri einstaklinga heyrir undir forstöðumann einstaklingsþjónustu og er hluti af stjórnendateymi sviðsins.
Helstu verkefni
- Stuðla að framúrskarandi viðskiptaupplifun og aukinni ánægju viðskiptavina
- Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við núverandi og nýja viðskiptavini
- Fylgja eftir markmiðum, árangri og söluþróun teymisins
- Leiða, styðja og þróa teymi gjaldkera og einstaklingsráðgjafa
- Bera ábyrgð á daglegri starfsemi og þjónustu við einstaklinga
- Greina tækifæri til vaxtar og vinna að stöðugum umbótum í þjónustu og rekstri
- Taka virkan þátt í þróun útibúsins og samstarfi innan bankans
Við leitum að einstaklingi sem
- Hefur reynslu af stjórnun og leiðtogahlutverki
- Býr yfir sterkri þjónustu- og viðskiptahugsun
- Hefur framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Er árangursdrifinn og getur virkjað aðra til góðs árangurs
- Sýnir frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæð vinnubrögð
- Hefur góða skipulagshæfni og getu til að forgangsraða verkefnum
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
Af hverju Íslandsbanki?
Hjá Íslandsbanka starfar öflugur hópur fólks sem vinnur saman að því að skapa framúrskarandi upplifun fyrir viðskiptavini og jákvæð áhrif í samfélaginu. Við leggjum áherslu á fagmennsku, árangur, samvinnu og tækifæri til vaxtar og þróunar.
Langar þig að leiða öflugt teymi og hafa raunveruleg áhrif á árangur og þjónustu Íslandsbanka á Suðurlandi? Þá hvetjum við þig til að sækja um.
Frekari upplýsingar veita Jón Árni Ólafsson, forstöðurmaður (jon.arni.olafsson@islandsbanki.is) og Guðlaugur Örn Hauksson, ráðningarstjóri (gudlaugurh@islandsbanki.is).
Skills
- Team Leadership
- Customer Relationship Management
- Sales Management
- Banking operations
- Financial Services
- Performance Monitoring
- Communication



