HirePortal

Þroskaþjálfun

Þroskaþjálfi, sérkennari eða starfsmaður með sambærilega menntun óskast til starfa við leikskólann Sæborg, Starhaga 11, 107 Reykjavík. Unnið er í anda hugmyndafræði Reggio Emilia og áhersla lögð á skapandi starf með börnum og flæði í leik. Sæborg er fjögurra deilda leikskóli.

Hlunnindi í starfi eru frítt fæði, sund- og menningarkort, heilsuræktarstyrkur og samgöngusamningur.

Starfið er laust frá 1. nóvember eða eftir samkomulagi.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að gerð einstaklingsnámskrár og veita barni þjálfun og stuðning í samvinnu við sérkennslustjóra og annað starfsfólk á deildinni.
  • Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.

Hæfniskröfur

  • Þroskaþjálfamenntun, sérkennaramenntun eða önnur sambærileg menntun
  • Reynsla af sérkennslu æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall 100% eða eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hafdís Svansdóttir leikskólastjóri í síma 4113471 eða í gegnum netfangið hafdis.svansdottir@rvkskolar.is og/eða Helga Jónína Sigurjónsdóttir, sérkennslustjóri í gegnum netfangið helga.jonina.sigurjonsdottir@rvkskolar.is

Skills

  • special education
  • Individual Education Plans (IEP)
  • Reggio Emilia Approach
  • Child Development
  • Parent Communication
  • Collaboration
  • Icelandic Language

Related jobs

ReykjavíkurborgApply for this job