HirePortal

Skólaritari

Í Breiðagerðisskóla eru um 350 nemendur í 1. til 7. bekk. Starfsmenn skólans eru um það bil 64 og eru þeir samhentur hópur sem hefur á undanförnum árum þróað skólann til þeirra starfshátta sem einkenna hann í dag. Grunnstefið í stefnu skólans er að lykillinn að góðri menntun og vellíðan barnanna sem við skólann nema leynist í samvinnu og samábyrgð starfsmanna skólans og annarra þeirra sem að starfsemi hans koma.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með símsvörun og upplýsingagjöf.
  • Skráning og utanumhald í upplýsingakerfum skólans.
  • Almenn skrifstofustörf, bréfaskriftir og skjalavistun.
  • Aðstoð við innkaup, afgreiðslu varnings og samskipti við birgja.
  • Önnur tilfallandi verkefni í samstarfi við stjórnendur skólans.

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný hugbúnaðarkerfi fljótt.
  • Mjög gott vald á íslensku, bæði í ræðu og riti.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfni og stundvísi.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög um grunnskóla.
  • Reynsla af skrifstofustörfum æskileg.

Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur og Sameykis.

Skills

  • Reception
  • Phone Etiquette
  • Data Entry
  • Office Administration
  • Record Keeping
  • Icelandic Language
  • computer literacy

Related jobs

ReykjavíkurborgApply for this job