Rafvirki, rafeindavirki eða rafvélavirki
- Eimskip
- Reykjavík, Iceland
- ISK 7,200,000 – ISK 9,000,000
Rafmagnsverkstæði Eimskips í Sundahöfn leitar að öflugum rafvirkja, rafeindavirkja eða rafvélavirkja í framtíðarstarf.
Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni í fyrsta flokks vinnuaðstöðu þar sem fagmennska og öryggi eru í forgrunni. Verkstæðið er hluti af samheldnu teymi sem vinnur að viðhaldi og uppbyggingu tækja og búnaðar sem styður við alþjóðlega flutningsstarfsemi Eimskips.
Ef þú hefur áhuga á tæknilegum lausnum, vinnur af nákvæmni og átt auðvelt með að vinna í hóp – þá viljum við heyra frá þér!
Um fullt starf er að ræða. Unnið er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 07:00 - 16:00 og til kl. 15:00 á föstudögum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almenn raflagnavinna, viðhald og nýlagnir
- Viðhald tækja og búnaðar
- Uppsetning og endurbætur á rafbúnaði
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Sveinspróf í rafvirkjun, rafeindavirkjun eða rafvélavirkjun
- Reynsla af viðgerðum á lyfturum og frystikerfum er kostur
- Reynsla af stýrisbúnaði og raflögnum er kostur
- Góð kunnátta í íslensku skilyrði.
- Góð þjónustulund og jákvæðni
Fríðindi í starfi:
- Öflugt starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðsvegar um landið
- Heilsu- og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur samgöngustyrk, og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira
- Gott mötuneyti og matur niðurgreiddur fyrir starfsfólk
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Samkeppnishæf laun
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnar Már Sveinsson, ragns@eimskip.com.
Umsóknarfrestur er til og með 21.september 2026.
Í anda jafnréttisstefnu Eimskips eru öll kyn hvött til að sækja um. Eingöngu er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningarvef Eimskips. Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.
Skills
- Electrical Wiring
- Electrical Maintenance
- Troubleshooting
- Preventive Maintenance
- Blueprint Reading
- Safety Compliance
- Team Collaboration




