HirePortal

Forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi

  • Hrafnista
  • Iceland
  • ISK 9,000,000 – ISK 12,000,000

Leitað er að öflugum, jákvæðum og drífandi aðila í starf forstöðumanns á Hrafnistu Hraunvangi í Hafnarfirði. Forstöðumaður ber ábyrgð á daglegum rekstri, gæðastarfi og þeirri þjónustu sem veitt er á heimilinu. Viðkomandi þarf að hafa sterka leiðtogahæfni, góðan skilning á rekstri og starfa eftir framtíðarsýn, stefnu og gildum Hrafnistu. Forstöðumaður situr í framkvæmdaráði Hrafnistu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun heimilsins
  • Ábyrgð á þjónustu, öryggi og gæðum
  • Tryggja að starfað sé eftir lögum og reglum um heilbrigðisþjónustu
  • Ábyrgð á stjórnun, leiðsögn og þróun starfsfólks
  • Fjölbreytt samstarf og samskipti við aðila innan og utan Hrafnistu
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda, framhaldsmenntun kostur
  • Yfirgripsmikil reynsla og þekking af heilbrigðisþjónustu
  • Farsæl reynsla af rekstri og stjórnun
  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun

Hrafnista Hraunvangi er eitt af sjö hjúkrunarheimilum Hrafnistu og eitt þeirra stærstu. Á Hrafnistu í Hafnafirði búa um 200 íbúar og þar starfa um 400 manns auk þess sem rekin er þar dagdvöl, kaffihús og kröftugt félagsstarf. Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir áhuga á starfinu, helstu reynslu og ástæðum þess að umsækjandi telur sig henta vel í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Salín Þórhallsdóttir, mannauðsráðgjafi, kristin.thorhallsdottir@hrafnista.is

Skills

  • Healthcare Management
  • Leadership
  • Operations Management
  • Quality Assurance
  • Regulatory Compliance
  • Staff Development
  • Strategic Planning

Related jobs

HrafnistaApply for this job