Umönnun Droplaugarstaðir
- Reykjavíkurborg
- Iceland
- ISK 45,600,000 – ISK 55,200,000
Droplaugarstaðir:
Droplaugarstaðir er hjúkrunarheimili með áherslu á heimilislegt umhverfi og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.
Droplaugarstaðir er með virkt gæðakerfi og fékk ISO vottun árið 2020 fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi. Í stefnu heimilisins eru öryggi, virkni og vellíðan íbúa, starfsfólks og fjölskyldna í öndvegi.
Unnið er eftir Eden alternative stefnunni.
Við leggjum áherslu á metnað í starfi, fagleg vinnubrögð og samvinnu íbúa og starfsfólks.
Íbúar eru 87 á 4 deildum, allir búa í sérbýli með baðherbergi.
Við erum staðsett við Snorrabraut, í hjarta Reykjavíkur og stutt í almenningssamgöngur.
Við bjóðum upp á:
- Gæðavottað starfsumhverfi.
- Krefjandi og spennandi verkefni.
- Skemmtilegan og faglegan starfsmannahóp.
- Heimilislegt vinnuumhverfi.
- Sveigjanlegan vinnutíma með vaktaóskakerfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umönnun íbúa.
- Veita íbúum persónulega aðstoð og stuðning við athafnir daglegs lífs.
Hæfniskröfur:
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Frumkvæði og sveigjanleiki.
- Jákvætt viðmót.
- Stundvísi.
- Íslenskukunnátta á stigi B2
- Lágmarksaldur 18 ár.
- Hreint sakavottorð skv. reglum Reykjavíkurborgar.
Hlunnindi:
- 36 klst. vinnuvika.
- Reykjavíkurkort skv. reglum Reykjavíkurborgar.
- Samgöngusamningur skv. reglum Reykjavíkurborgar.
- Íþróttastyrkur skv. reglum Reykjavíkurborgar.
Laun eru skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hróðný Lund á netfanginu hrodny.lund@reykjavik.is
Skills
- Personal Care Assistance
- Activities of Daily Living Support
- Communication Skills
- Independent Work
- Proactiveness
- Flexibility
- Icelandic Language (B2)



