Lyfjafræðingur
- Lyfja
- Reykjavík, Iceland
- ISK 8,400,000 – ISK 10,800,000
Viltu starfa á vinnustað þar sem fagþekking þín fær að njóta sín, þjónustan er persónuleg og þú ert hluti af metnaðarfullu og skemmtilegu teymi?
Hjá Lyfju eru ýmis tækifæri í boði fyrir lyfjafræðinga og við viljum gjarnan heyra frá þér – hvort sem þú ert að leita að lægra eða hærra starfshlutfalli eða sveigjanlegri útfærslu. Segðu okkur hvað hentar þér og við skoðum hvort við getum fundið rétta staðinn og starfshlutfallið saman.
Nokkur af þeim tækifærum sem eru í boði núna:
Lyfja Smáralind – um 80% eða meira
• Virkir dagar, ýmist kl. 12–18 eða 13–19
• Möguleiki á hærra starfshlutfalli með helgarvöktum
Lyfja Norðurhella – um 40% eða meira
• Föstudagar kl. 9–18 og einn eftirmiðdagur kl. 12–18
• Möguleiki á laugardagsvöktum
Lyfja Hafnarstræti – um 40%
• Mánudagar kl. 9–18 og einn fastur eftirmiðdagur kl. 12–18 eftir hentugleika
Lyfja Nýbýlavegi – um 43%
• Mánudagar, þriðjudagar og föstudagar kl. 13–18:30
Lyfja Hólagarður – um 40%
• Þrír eftirmiðdagar kl. 13–18 – föstudagar og tveir aðrir dagar eftir hentugleika
Lyfja Spöng – um 30%
• Miðvikudagar og föstudagar kl. 13–18:30
Flakkari – starfshlutfall eftir samkomulagi
• Unnið eftir samkomulagi í þeim lyfjaverslunum Lyfju þar sem þörf er á hverju sinni
Hjá Lyfju leggjum við áherslu á faglega, hlýlega og lausnamiðaða þjónustu. Í okkar daglegu störfum sýnum við viðskiptavinum að þeir skipta okkur máli, veitum ráðgjöf og finnum lausnina - eða leiðina að henni. Þess vegna skiptir máli að hjá okkur starfi lyfjafræðingar sem hafa metnað fyrir faginu, ánægju af mannlegum samskiptum og vilja auka lífsgæði fólks á hverjum degi.
Hjá Lyfju færð þú tækifæri til að
- sinna mikilvægu hlutverki í heilbrigðisþjónustu og hafa jákvæð áhrif á heilsu og líðan viðskiptavina
- nýta fagþekkingu þína í ráðgjöf, fræðslu og þjónustu
- vinna með öflugu teymi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, gott samstarf og jákvæðan starfsanda
- taka þátt í fjölbreyttum verkefnum í daglegum rekstri apóteks
- þróast í starfi með fræðslu, stuðningi og tækifærum til vaxtar
Við leitum að lyfjafræðingum sem
- hafa háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi
- hafa ríka þjónustulund og ánægju af samskiptum við fólk
- eru metnaðarfullir, lausnamiðaðir og áreiðanlegir
- kunna vel við teymisvinnu og vilja leggja sitt af mörkum í góðum starfsanda
- hafa áhuga á heilbrigði og vellíðan
Allar fyrirspurnir og umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og því hvetjum við þig til að sækja um sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Anna Sólmundsdóttir, lyfjafræðingur og sérfræðingur á mannauðssviði, á anna@lyfja.is
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá Lyfju, ELKO, Krónunni og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.
Skills
- Pharmaceutical Care
- Medication Dispensing
- Patient Counseling
- Regulatory Compliance
- Inventory Management
- Prescription Verification
- Customer Service




