Vatnsaflssérfræðingur
- EFLA
- Iceland
- ISK 9,000,000 – ISK 12,000,000
EFLA leitar að metnaðarfullum og áhugasömum starfskrafti með reynslu af hönnun vatnsaflsvirkjana til starfa á orkusviði. Starfið er óháð staðsetningu og því hægt að sinna því hvaðan sem er en EFLA er með skrifstofur um allt land.
Starfið býður upp á tækifæri til að tilheyra öflugu teymi með reyndum sérfræðingum, ásamt því að vinna að fjölbreyttum og spennandi verkefnum er tengjast hönnun vatnsaflsvirkjana, smávirkjana og annarra orkutengdra mála. EFLA býður upp á heildstæða ráðgjöf við undirbúning og hönnun á vatnsaflsvirkjunum, allt frá frumathugun til framkvæmdaeftirlits og gangsetningar, viðhalds og umbóta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Frumathuganir og rennslismælingar
- Gagnaúrvinnsla og mat á orkugetu
- Gerð kostnaðar og verkáætlana
- Skýrslugerð ofl.
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
- Verkefnastýring
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem á sviði, véla-, bygginga-, eða rafmagnsverkfræði, og/eða tæknifræði
- Reynsla af hönnun og rekstri vatnsaflsvirkjana eða smávirkjana er mikill kostur
- Haldbær þekking og reynsla á sviði straumfræði kostur
- Áhugi á tækninýjungum er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Þjónustulipurð og færni í mannlegum samskiptum
- Góð almenn tölvukunnátta
Vinnustaðurinn EFLA
EFLA er þekkingarfyrirtæki sem starfar á sviði verkfræði og tækni.
EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starfrækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni. Við bjóðum störf óháð staðsetningu svo starfsfólk geti búið í sinni heimabyggð hvar sem er á landinu, unnið í spennandi verkefnum og tilheyrt öflugum teymum. Um fjórðungur starfsfólks EFLU starfar á landsbyggðinni.
Við bjóðum upp á afbragðs starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og góðan starfsanda.
Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.
EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki og hefur unnið frumkvöðlastarf í sjálfbærum rekstri.
Nánari upplýsingar um vinnustaðinn
Nánari upplýsingar um stefnur EFLU og persónuverndaryfirlýsing til umsækjenda
Skills
- Hydropower plant design
- Hydrology
- Fluid Mechanics
- Project Management
- Feasibility Studies
- Cost Estimation
- Technical Reporting



