HirePortal

Meiraprófsbílstjóri á dag- og kvöldvöktum

  • Eimskip
  • Iceland
  • ISK 6,600,000 – ISK 8,400,000

Eimskip innanlands leitar að þjónustuliprum og ábyrgum meiraprófsbílstjóra með aukin ökuréttindi. Um er að ræða framtíðarstarf í vaktavinnu þar sem unnið er aðra vikuna frá kl. 08:00–16:00 og hina vikuna frá kl. 16:00–00:00. Á dagvöktum felst starfið í gámaakstri á höfuðborgarsvæðinu en á kvöldvöktum í akstri á landsbyggðinni.

Starfið tilheyrir Innanlandssviði Eimskips, en á sviðinu starfa um 400 starfsmenn í fjölbreyttum störfum á 18 starfsstöðvum víðs vegar um landið. Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni í fyrsta flokks vinnuaðstöðu þar sem fagmennska og öryggi eru í forgrunni.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Akstur flutningabíla, lestun og losun
  • Jákvæð samskipti og framúrskarandi þjónusta til viðskiptavina
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Meirapróf CE er skilyrði
  • Réttindi til aksturs í atvinnuskyni er skilyrði
  • Lyftarapróf er kostur
  • ADR réttindi er kostur
  • Góð íslensku og/eða ensku kunnátta
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Framúrskarandi þjónustulund og jákvæðni
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Stundvísi, áreiðanleiki og góð líkamleg færni

Við bjóðum:

  • Aðgang að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur frábær orlofshús um allt land.
  • Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira.
  • Nýjan og vel útbúin flutningabíl

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Óli Eggertsson, rekstrarstjóri, egg@eimskip.com.

Umsóknarfrestur er til og með 17.september 2026

Í anda jafnréttisstefnu Eimskips eru öll kyn hvött til að sækja um. Umsóknum skal skilað í gegnum vefsvæði Eimskips, www.eimskip.is. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.

Skills

  • CE Driving Licence
  • Container Truck Driving
  • Loading and Unloading
  • Customer Service
  • forklift operation
  • ADR certification
  • Icelandic Language

Related jobs

EimskipApply for this job