HirePortal

Sérkennsla í leikskólanum Heiðarborg

Heiðarborg er fjögurra deilda en þar dvelja 69 börn samtímis við leik og störf. Einkunnarorð skólans er vinátta, gleði, virðing, sem eru rauður þráður í leikskólastarfinu.

Í starfinu felst:

  • Að vinna að gerð einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir.
  • Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
  • Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður úthlutar.
  • Að vera stuðningur fyrir viðkomandi deild.

Hæfniskröfur:

  • Nám í hagnýtri atferlisgreiningu, þroskaþjálfamenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af vinnu með börnum sem þurfa sérkennslu
  • Lipurð í samskiptum
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum skilyrði

Fríðindi í starfi:

  • Sund- og menningarkort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Frítt fæði á vinnutíma

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri Jóhanna Benný Hannesdóttir og/eða Katrín Alda Ámundadóttir aðstoðarleikskólastjóri á netfanginu heidarborg@reykjavik.is og í síma 411-6570.

Skills

  • special education
  • Individualized Education Plans (IEP)
  • Applied Behavior Analysis (ABA)
  • Child Development
  • Parent Communication
  • Collaboration
  • Icelandic Language (B2)

Related jobs

ReykjavíkurborgApply for this job