Matráður
- Akureyrarbær
- Iceland
- ISK 4,000,000 – ISK 5,000,000
Í Giljaskóla er laus til umsóknar 100% staða matráðs. Vinnutími er frá kl. 7:30–15:30. Ráðið er í stöðuna frá 1. nóvember 2026 eða eftir samkomulagi. Um er að ræða tímabundið starf út skólaárið 2026–2027, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Giljaskóli er staðsettur við Kiðagil. Í skólanum eru um 370 nemendur og um 90 starfsmenn.
Giljaskóli starfar eftir samskipta- og uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar – uppbygging sjálfsaga. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og réttindaskóli UNICEF.
Í skólanum er sérdeild sem sinnir kennslu og þjálfun barna með fjölbreyttar fatlanir. Giljaskóli er framsækinn skóli sem hefur verið í fararbroddi á sviði upplýsingatækni og er í mikilli þróun náms- og kennsluhátta.
Einkunnarorð Giljaskóla eru „Ábyrgð - Virðing - Vinsemd“.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.giljaskoli.is
Helstu verkefni eru:
- Er verkstjóri í eldhúsi/mötuneyti Giljaskóla.
- Sér um framfylgd matseðla og ber ábyrgð á sérstökum matseðlum fyrir nemendur með fæðuóþol eða aðrar sérþarfir tengdar mataræði.
- Annast matreiðslu og hefur umsjón með hádegismat í mötuneyti og síðdegishressingu fyrir nemendur í skólavistun. Sinnir einnig tilfallandi veitingum á fundum og mat fyrir starfsfólk á starfsdögum.
- Sér um innkaup fyrir mötuneyti skólans og kaffistofu starfsfólks. Fylgist með rekstrarstöðu mötuneytis og leitast við að innkaup séu hagkvæm.
- Sér um frágang og uppvask eftir máltíðir og kaffitíma.
- Annast frágang í mötuneyti og dagleg þrif í eldhúsi.
Hæfniskröfur:
- Menntun sem matartæknir er æskileg.
- Góð þekking á gerð og framreiðslu matar.
- Reynsla af starfi í mötuneyti eða skólaeldhúsi.
- Þekking á ráðleggingum Lýðheilsustöðvar varðandi skólamáltíðir er æskileg.
- Almenn tölvuþekking.
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
- Er skipulagður, sýnir frumkvæði og getur unnið sjálfstætt.
- Stundvísi, reglusemi og samviskusemi.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð íslenskukunnátta.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Starfsmenn skólans gegna störfum sínum samkvæmt grunnskólalögum, reglugerðum, starfslýsingum, kjarasamningum og mannauðsstefnu Akureyrarbæjar eftir því sem við á.
Við ráðningu í starfið verður tekið mið af mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is.
Nánari upplýsingar veitir Elías Gunnar Þorbjörnsson, skólastjóri, í síma 462-4820 eða með tölvupósti á elias@akmennt.is.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 14. september 2026.
Skills
- Food Preparation
- Menu Planning
- Kitchen Management
- Inventory Management
- Food Safety
- Special Dietary Needs
- Cleaning and Sanitation


