Framkvæmdastjóri Icelandic Food Company
- Krónan
- Iceland
- ISK 15,000,000 – ISK 20,000,000
Viltu leiða öflugt matvælafyrirtæki inn í næsta vaxtarskeið?
Icelandic Food Company (IFC) leitar að kraftmiklum og framsýnum framkvæmdastjóra til að leiða félagið áfram á spennandi vegferð. Félagið hefur vaxið hratt undanfarin ár og stendur á sterkum grunni, með öflugt teymi, sterk vörumerki og fjölmörg tækifæri til frekari vaxtar og þróunar.
IFC er dótturfélag Krónunnar og hluti af Festi samstæðunni. Undir IFC eru meðal annars Matseðill, sem hefur verið í miklum vexti á markaði tilbúinna rétta, og Fiskverzlun Hafliða, eitt rótgrónasta vörumerki landsins í ferskum fiski. IFC sinnir jafnframt framleiðslu og vöruþróun fyrir Krónuna og aðra samstarfsaðila.
Markmið IFC er skýrt: að vera leiðandi í þróun og framleiðslu á ferskum, bragðgóðum og spennandi lausnum sem gera lífið einfaldara fyrir viðskiptavini.
Hlutverkið
Framkvæmdastjóri ber heildarábyrgð á rekstri, stefnu og áframhaldandi uppbyggingu IFC og leiðir öflugan hóp stjórnenda og starfsfólks.
Fram undan eru fjölmörg tækifæri til að efla núverandi starfsemi, þróa vörumerki og vöruframboð enn frekar, skapa nýjar tekjulindir og byggja upp hagkvæman og skalanlegan rekstur.
Við leitum að leiðtoga með sterkan rekstrarskilning og sem sameinar frumkvæði og framkvæmdagleði. Einstaklingi sem sér tækifærin, fær fólk með sér og lætur hlutina gerast.
Verkefni og ábyrgð
- Móta og innleiða stefnu IFC í nánu samstarfi við stjórn og lykilstjórnendur.
- Bera ábyrgð á rekstri, afkomu og fjárhagslegum markmiðum félagsins.
- Leiða áframhaldandi vöxt og viðskiptaþróun og greina ný tækifæri á markaði.
- Efla og þróa vörumerki IFC og tryggja að vöruþróun taki mið af þörfum og þróun neytendamarkaðar.
- Tryggja framúrskarandi framkvæmd í framleiðslu, gæðum, innkaupum og aðfangakeðju.
- Auka skilvirkni, framleiðni og arðsemi með stöðugum umbótum og skýrri forgangsröðun.
- Byggja upp öflugt teymi og skapa menningu þar sem fólk fær ábyrgð, svigrúm og tækifæri til að ná árangri.
- Þróa áfram samstarf við núverandi og framtíðarviðskiptavini IFC.
- Tryggja að gæði, matvælaöryggi og fagleg vinnubrögð séu ávallt í fyrirrúmi.
Við leitum að leiðtoga sem
- hefur farsæla reynslu af stjórnun og rekstri
- hefur sterkan rekstrarskilning og reynslu af rekstrar- og fjárhagslegri ábyrgð
- hefur haldbæra reynslu af því að leiða vöxt, breytingar og umbætur
- hefur áhuga á vöruþróun, neytendaþörfum og því að skapa vörur og lausnir sem vinna sér sess á markaði
- er öflugur leiðtogi sem byggir upp fólk, skapar traust og nær hópnum með sér
- er drífandi, lausnamiðaður og tilbúinn að vera nálægt bæði fólkinu og rekstrinum
- hugsar stórt en hefur jafnframt aga og einbeitingu til að tryggja að hugmyndir skili mælanlegum árangri
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur, en reynsla, leiðtogahæfni, viðskiptavit og sýnilegur árangur vega þungt.
Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif
Hjá IFC fær nýr framkvæmdastjóri tækifæri til að taka við fyrirtæki á sterkum grunni og leiða næsta kafla í uppbyggingu þess.
Við viljum halda áfram að vaxa, þróa nýjar vörur og hugmyndir, styrkja vörumerkin okkar og nýta þau fjölmörgu tækifæri sem eru til staðar til frekari vaxtar og viðskiptaþróunar, bæði með því að efla núverandi starfsemi og sækja fram á nýjum sviðum.
Þetta er hlutverk fyrir einstakling sem hefur gaman af mat, fólki, rekstri og viðskiptum, og vill sjá góðar hugmyndir verða að raunverulegum árangri.
Langar þig að leiða næsta kafla Icelandic Food Company?
Við hlökkum til að heyra frá þér.
Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2026.
Fyrir nánari upplýsingar:
Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar (gudruna@kronan.is)
Skills
- Strategic Planning
- Financial Management
- Operations Management
- Leadership
- Business Development
- Brand Management
- Stakeholder Management






