HirePortal

Matráður

Leikskólinn Iðavöllur við Gránufélagsgötu óskar eftir að ráða matráð í tímabundna 100% stöðu með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Æskilegt er að viðkomandi geti mætt til vinnu á morgnana milli kl. 07:00 og 07:30 á morgnana. Einnig er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Viltu vinna með skemmtilegu fólki á hæglátum vinnustað?

Leikskólinn Iðavöllur er fjögurra deilda leikskóli við Gránufélagsgötu á Akureyri. "Þar er leikur að læra" eru einkunnarorð Iðavallar. Lögð er áhersla á virðingu, nálægð, hlýju og umhyggju sem hluta af uppeldisstarfinu.

Viltu vita meira? Kíktu á https://www.akureyri.is/idavollur

Eldhús Iðavallar leitast við að bjóða börnum og starfsfólki leikskólans hollan og bragðgóðan mat. Eldað er eftir sameiginlegum matseðlum skólaeldhúsa á Akureyri. Hlaðborð er í matsal fyrir aðra en allra yngstu börnin og sjá matráðar um hlaðborðið í samvinnu við annað starfsfólk skólans.

Matráður starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, viðeigandi kjarasamningum, starfsmannastefnu Akureyrarbæjar og skólastefnu Akureyrarbæjar.

Leikskólastjóri ræður matráð við sinn skóla. Næsti yfirmaður matráðs er leikskólastjóri.

Helstu verkefni eru:

  • Er verkstjóri í eldhúsi Iðavallar. Aðstoðarmatráðar eru tveir.
  • Annast gerð matseðla í samvinnu við matarteymi skólans.
  • Sér um framfylgd matseðla og ber ábyrgð á framreiðslu fyrir nemendur með fæðuóþol eða aðrar sérþarfir tengdar mataræði.
  • Annast matreiðslu og hefur umsjón með morgunmat, hádegismat í og síðdegishressingu. Matsalur er fyrir alla nemendur nema þá allra yngstu.
  • Sér um innkaup fyrir mötuneyti skólans. Fylgist með rekstrarstöðu mötuneytis og leitast við að innkaup séu hagkvæm og samkvæmt samningum við birgja.
  • Sér um frágang og uppvask.
  • Annast frágang og dagleg þrif í eldhúsi.

Hæfniskröfur:

  • Menntun sem matartæknir er æskileg.
  • Góð þekking á gerð og framreiðslu matar.
  • Reynsla af starfi í mötuneyti eða skólaeldhúsi æskileg.
  • Þekking á ráðleggingum Lýðheilsustöðvar varðandi skólamáltíðir er æskileg.
  • Almenn tölvuþekking nauðsynleg.
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
  • Er skipulagður, sýnir frumkvæði og getur unnið sjálfstætt.
  • Stundvísi, reglusemi og samviskusemi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veita Anna Lilja Sævarsdóttir, skólastjóri í síma 414-3740 eða netfangið annalilja@akmennt.is og Ragnheiður I. Ragnarsdóttir aðstoðarskólastjóri í 414-3740 eða netfangið rir@akmennt.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða í þjónustuveri bæjarins, Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 16. september 2026.

Skills

  • Menu Planning
  • Food Safety and Sanitation
  • Cooking and Meal Preparation
  • Special Diet Accommodation
  • Kitchen Supervision
  • Inventory Management
  • Team Collaboration

Related jobs

AkureyrarbærApply for this job