HirePortal

Tækniteiknari

  • EFLA
  • Iceland
  • ISK 6,600,000 – ISK 8,400,000

EFLA leitar að metnaðarfullum og áhugasömum tækniteiknara á starfsstöð EFLU á Norðurlandi. Tækniteiknari vinnur með hönnuðum og öðrum sérfræðingum að uppsetningu teikninga, framsetningu hönnunar og heildaryfirbragði skilateikninga.

Helstu verkefni

  • Framsetning hönnunar í samvinnu við hönnuði
  • Tækniteiknun í tví- og þrívídd
  • Uppsetning og gerð teiknisetta
  • Móta vinnulag framtíðarinnar milli hönnuða og tækniteiknara

Hæfniviðmið

  • Próf í tækniteiknun
  • Góð kunnátta á Revit
  • Kunnátta á AutoCad
  • Þekking á BIM umhverfi er kostur
  • Jákvæðni og samstarfsfærni
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar í mannauðsteymi EFLU

Umsóknarfrestur er til og með 6.september.

Vinnustaðurinn EFLA

EFLA er þekkingarfyrirtæki sem starfar á sviði verkfræði og tækni.

EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starfrækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni. Við bjóðum störf óháð staðsetningu svo starfsfólk geti búið í sinni heimabyggð hvar sem er á landinu, unnið í spennandi verkefnum og tilheyrt öflugum teymum. Um fjórðungur starfsfólks EFLU starfar á landsbyggðinni.

Við bjóðum upp á afbragðs starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og góðan starfsanda.

Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.

EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki og hefur unnið frumkvöðlastarf í sjálfbærum rekstri.

Nánari upplýsingar um vinnustaðinn

Nánari upplýsingar um stefnur EFLU og persónuverndaryfirlýsing til umsækjenda

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á efla.is

Skills

  • Revit
  • AutoCAD
  • BIM
  • Technical Drawing
  • 2D Drafting
  • 3D Modeling
  • Collaboration

Related jobs

EFLAApply for this job