HirePortal

Exercise and Health Trainer

Við ætlum að fjölga í teyminu og óskum eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling með sterkan bakgrunn í íþróttum, þjálfun og/eða hreyfingu.

Íþróttafræðimenntun er kostur, en ekki skilyrði. Viðkomandi getur einnig haft aðra háskólamenntun, svo lengi sem viðkomandi hefur góða þekkingu, reynslu og brennandi áhuga á hreyfingu og þjálfun.

Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi og unnið er á dagvinnutíma. Gott væri ef viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Við leitum að einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, er sjálfstæður í vinnubrögðum en um leið hluti af sterku teymi.

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili rekur tvenn hjúkrunarheimili á Akureyri. Hjá Heilsuvernd Hjúkrunarheimilum fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi í öldrunarþjónustu sem er í stöðugri þróun. Á hjúkrunarheimilunum er rekin dagþjónusta, mötuneyti, þvottahús, auk þess sem meðal annars er boðið upp á iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, fjölbreytt félagsstarf og læknisþjónustu. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, góðan heimilisbrag og lífsgæði íbúanna. Markmið allrar þjónustu sem veitt er á Heilsuvernd Hjúkrunarheimilunum er að tryggja öryggi og vellíðan íbúa og standa vörð um sjálfsmynd þeirra og sjálfsvirðingu.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Setja saman og útskýra æfingaáætlanir

  • Sjá um og stýra sérhæfðu hópastarfi

  • Sjá um hreyfistundir íbúa og notenda

  • Sjá um og vera með umsjá æfinga í sal

  • Samvinna með öflugu teymi starfsfólks

  • Ráðgjöf um almennt heilbrigði og hreyfingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem íþróttafræðingur er ekki krafa en kostur eða sambærilegt

  • Áhuga á öflugri í teymisvinnu

  • Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi

  • Áhugi á að hafa áhrif á hreyfingu skjólstæðinga Heilsuverndar

  • Almennur áhugi á íþróttum og hæfni til að beita vísindalegum aðferðum í starfi

  • Þekking á áhrifum hreyfingar, þjálfunar og mataræðis á heilsufar fólks

  • Hæfileiki til að vinna skipulega og tekið þátt í teymisvinnu

  • Frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Sjálfstæði í starfi

  • Almenn tölvukunnátta

  • Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál

Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2026.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað. Ráðið er í starfið óháð kyni. Í teyminu starfar öflugur hópur með fjölbreytta reynslu þar sem rík áhersla er lögð á uppbyggilegt samstarf og jákvæðan starfsanda. Nánari upplýsingar veitir Harpa Dögg Sigurðardóttir, forstöðumaður dag- og iðjuþjálfunar, harpadögg@hlid.is, eða Jóhanna Margrét Gunnarsdóttir deildarstjóri, johannamg@hlid.is.

Skills

  • Exercise Program Design
  • Fitness Assessment
  • Group Exercise Instruction
  • Health Coaching
  • Rehabilitation exercise
  • Client Motivation
  • Safety and Injury Prevention

Related jobs

Heilsuvernd HjúkrunarheimiliApply for this job