Meiraprófsbílstjóri á Húsavík
- Eimskip
- Iceland
- ISK 5,400,000 – ISK 6,600,000
Viltu vera á ferðinni með okkur?
Eimskip á Húsavík leitar að ábyrgum og þjónustulunduðum meiraprófsbílstjóra með aukin ökuréttindi í framtíðarstarf.
Í starfinu sinnir þú flutningum á Húsavík og um Norðausturland og ert hluti af samhentum hópi þar sem góð þjónusta, örugg vinnubrögð og samvinna eru í fyrirrúmi.
Vinnutími er kl. 08:00–16:00 á virkum dögum.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Akstur flutningabíla, lestun og losun
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- C og CE réttindi eru skilyrði
- Réttindi til aksturs í atvinnuskyni eru skilyrði
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Vinnuvélaréttindi eru kostur
- ADR-réttindi eru kostur
- Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð líkamleg færni
Við bjóðum:
- Aðgang að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur frábær orlofshús um allt land
- Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira
Nánari upplýsingar um starfið veitir Vilhjálmur Sigmundsson svæðisstjóri á Húsavík, vsi@eimskip.com.
Umsóknarfrestur er til og með 13. september 2026.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.
Skills
- CE Driving Licence
- Professional driving
- Cargo Loading and Securing
- Customer Service
- Icelandic Language
- Vehicle Inspection
- Safety Compliance

