HirePortal

Stuðningsfulltrúi í frístundaheimilið Guluhlíð

Frístundaheimilið Gulahlíð óska eftir að ráða stuðningsfulltrúa í starf veturinn 2026 - 2027. Frístundaheimilið Gulahlíð stendur fyrir frítímastarfi, að skóla loknum og þjónustar börn úr Klettaskóla. Klettaskóli er sérskóli fyrir börn og unglinga með fötlun.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Í boði er 30-50% hlutastarf eftir hádegi á virkum dögum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-10 ára börn.
  • Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.

Hæfniskröfur

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall 30-50%

Ráðningarform Tímabundin ráðning

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Rannveig Halldórsdóttir Margret.Rannveig.Halldorsdottir@reykjavik.is

Frístundaheimilið Gulahlíð - Kringlumýri

Vesturhlíð 3

105 Reykjavík

Skills

  • childcare
  • Recreational Program Planning
  • Special Education Support
  • Communication Skills
  • Initiative
  • Independence
  • Icelandic Language (B2)

Related jobs

ReykjavíkurborgApply for this job