HirePortal

Stuðningsfulltrúi

Víkurskóli er staðsettur í norðanverðum Grafarvogi og er unglingaskóli fyrir 8.-10. bekk. Skólinn er nýsköpunarskóli þar sem lögð er áhersla á að þróa nýjar lausnir í námi og kennslu, öfluga teymisvinnu og virka og lýðræðislega þátttöku nemenda skólastarfinu.

Í Víkurskóla er meginstefið nýsköpunarhugsun, lausnarleit, tækni og teymisvinnu sem og leiðsagnarnám og uppeldi til ábyrgðar.

Víkurskóli er með regnbogavottun frá Reykjavíkurborg og er þátttakandi í grænum skrefum borgarinnar.

Leitað er að duglegum og kraftmiklum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna með unglingum, starfa í teymum, aðstoða nemendur í daglegu skólastarfi.

Hægt er að kynna sér starfið á Facebooksíðu skólans Víkurskóli - nýsköpunarskoli https://www.facebook.com/profile.php?id=100063441866965

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoða nemendur undir handleiðslu sérkennara í námsveri skólans.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.

Hæfniskröfur

  • Hæfni til að vinna með unglingum
  • Lipurð í samskiptum, hæfni og áhugi á að vinna í teymum og sveigjanleiki í starfi
  • Góð íslenskukunnátta - kröfur um C1 samkvæmt Evrópska tungumálastaðlinum

Upplýsingar um starfið

  • Starfshlutfall 50-60% (hentar vel þeim sem eru í fjarnámi
  • Umsóknarfrestur er til 11. september 2026
  • Laun eru samkvæmt samningi Sameykis og Reykjavíkurborgar

Hlunnindi

  • Samgöngustyrkur, sund- og menningarkort
  • Ódýrt og gott mötuneyti og skemmtilegt samstarfsfólk

Nánari upplýsingar um starfið veitir Svava Margrét Ingvarsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 411-7800 á skrifstofutíma og í tölvupósti Svava.Margret.Ingvarsdottir@reykjavik.is

Skills

  • student support
  • Special Education Assistance
  • Team Collaboration
  • Icelandic (C1)
  • Adolescent Development
  • Communication Skills
  • Flexibility

Related jobs

ReykjavíkurborgApply for this job